Valur vann sinn sjöunda leik í öllum keppnum er liðið heimsótti Hauka og vann öruggan 29:20-sigur í Olísdeild kvenna í handbolta í dag.
Valskonur komust í 5:1 snemma leiks og tókst Haukum ekki að jafna eftir það, en staðan í hálfleik var 14:9. Valur náði 5:1-kafla strax í upphafi seinni hálfleiks og vann að lokum þægilegan sigur.
Lovísa Thompson skoraði sjö mörk fyrir Val og Íris Ásta Pétursdóttir og Ragnhildur Edda Þórðardóttir skoruðu fimm mörk hvor. Íris Björk Símonardóttir varði 14 skot í markinu. Sara Odden skoraði fimm mörk fyrir Hauka.
Valur er með 29 stig í öðru sæti, þremur stigum á eftir toppliði Fram. Haukar eru í sjöunda og næstneðsta sæti með tólf stig.