Fimm mörk Arons í tólfta sigurleiknum í röð

Aron Pálmarsson skoraði 5 mörk í dag.
Aron Pálmarsson skoraði 5 mörk í dag. Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldsson

Aron Pálmarsson og samherjar í Barcelona unnu auðveldan útisigur á Celje Lasko, 37:25, í þrettándu og næstsíðustu umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í handknattleik í Slóveníu í dag.

Aron skoraði fimm mörk í leiknum eins og franski landsliðsmaðurinn Ludovic Fabregas en Slóveninn Jure Dolenec var markahæstur Barcelonamanna í heimalandi sínu með 7 mörk.

Barcelona vann þar með sinn tólfta sigur í röð í keppninni, tapaði aðeins í fyrstu umferðinni, og er með fjögurra stiga forystu í A-riðli fyrir lokaumferðina. Þar með sleppur Katalóníuliðið við sextán liða úrslitin og fer beint í átta liða úrslit, eins og Kiel frá Þýskalandi sem hefur tryggt sér sigur í B-riðlinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert