Tíu mörk tryggðu sæti í liði umferðarinnar

Rúnar Kárason skoraði tíu mörk í Íslendingaslag á föstudaginn.
Rúnar Kárason skoraði tíu mörk í Íslendingaslag á föstudaginn. mbl.is/Hari

Rúnar Kárason, leikmaður Ribe-Esbjerg, var valinn í lið umferðarinnar í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik fyrir frammistöðu sína í 26:26-jafntefli Ribe-Esbjerg gegn Kolding á heimavelli á föstudaginn síðasta.

Rúnar gerði sér lítið fyrir og skoraði tíu mörk úr fimmtán skotum og þá gaf Íslendingurinn einnig tvær stoðsendingar í leiknum. Ribe-Esbjerg er í fimmta sæti deildarinnar með 24 stig, 13 stigum minna en topplið Aalborg.

Ljósmynd/hbold.dk
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert