Gott framlag frá Birnu var ekki nóg

Birna Berg Haraldsdóttir var markahæst hjá Neckarsulmer í kvöld.
Birna Berg Haraldsdóttir var markahæst hjá Neckarsulmer í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Birna Berg Haraldsdóttir og samherjar hennar í Neckarsulmar máttu sætta sig við ósigur gegn Thüringer á útivelli, 25:20, í þýska handboltanum í kvöld.

Birna var markahæst í liði Neckarsulmer með 7 mörk en lið hennar er í niunda sæti af fjórtán liðum með 12 stig úr sautján leikjum og siglir lygnan sjó í deildinni, er átta stigum fyrir ofan fallsæti. Thüringer er í fjórða sæti með 24 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert