Löwen nær öruggt í átta liða úrslitin

Alexander Petersson skoraði 5 mörk í kvöld.
Alexander Petersson skoraði 5 mörk í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

Íslendingaliðið Rhein-Neckar Löwen er komið með annan fótinn í átta liða úrslit EHF-bikars karla í handknattleik eftir stórsigur gegn Cuenca frá Spáni á heimavelli í kvöld, 36:25.

Alexander Petersson skoraði 5 mörk fyrir Löwen en Andre Schmid var markahæstur með 8 mörk og Jannik Kohlbacher skoraði 7. Ýmir Örn Gíslason var ekki í leikmannahópi Löwen í kvöld.

Löwen hefur unnið alla fjóra leiki sína í B-riðli og er með 8 stig en Nimes og Cuenca eru með 3 stig og Holstebro ekkert. Sigurlið riðilsins kemst í átta liða úrslit ásamt þremur af fjórum liðunum í öðru sæti þannig að það er afar ólíklegt annað en að Löwen fari áfram þótt liðið myndi tapa tveimur síðustu leikjum sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert