Handknattleikssamband Íslands er með átakið „Æfum heima“ í gangi á samfélagsmiðlum en þar sýnir landsliðsfólk í handbolta ýmsar æfingar sem hægt er að gera í einangruninni heima.
Í dag eru það landsliðskonurnar og Framararnir Karen Knútsdóttir og Steinunn Björnsdóttir sem taka á honum stóra sínum með öflugum og árangursríkum æfingum.
Við hjá Árvakri viljum vekja athygli á því sem vel er gert á þessum erfiðu tímum. Ef þú ert með góða sögu af fyrirtækjum og einstaklingum sem eru að gera gott, sendu okkur ábendingu á netfangið stondumsaman@mbl.is.