Selfyssingurinn Þórir Hergeirsson hefur stýrt norska kvennalandsliðinu í handknattleik síðan 2009 og mun hann á næstunni skrifa undir nýjan fjögurra ára samning við norska handknattleikssambandið.
„þetta verður frágengið í náinni framtíð,“ sagði Þórir í viðtali við norska blaðið Verdens Gang í kvöld en áður en hann varð aðalþjálfari var hann aðstoðarmaður Marit Breivik hjá landsliðinu í átta ár eða frá árinu 2001. Hann hefur átt í samningsviðræðum við sambandið í rúmt ár en núverandi samningur hans rennur út um áramótin. Skrifi hann undir nýjan samning mun hann gilda fram yfir Ólympíuleikana í París 2024.
Ólympíuleikunum í Tókýó hefur verið frestað til næsta árs en Þórir er fullviss um að EM fari fram í Noregi og Danmörku í desember. Norska liðið mun þar spila alla sína leiki heima, eins langt og það kemst, en úrslitaleikurinn fer fram í Bærum.
„Það skiptir miklu máli að haga öllum okkar undirbúning á þann veg að mótið fari fram, við getum ekkert hikað með það. Við undirbúum okkur fyrir Evrópumeistaramótið,“ sagði Þórir.
Undir stjórn Þóris hefur norska kvennalandsliðið unnið til níu verðlauna á tólf stórmótum og þar af hafa Norðmenn unnið þrjá Evrópumeistaratitla, tvo heimsmeistaratitla og ólympíumeistaratitilinn einu sinni. Á heimsmeistaramótinu sem haldið var í Japan í desember höfnuðu Norðmenn í fjórða sæti.