Landsliðsþjálfarinn vill víkka sjóndeildarhringinn

Ragnhildur Edda Þórðardóttir, hornamaður Vals, er í hópnum.
Ragnhildur Edda Þórðardóttir, hornamaður Vals, er í hópnum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik, hefur valið 21 leikmann til æfinga með B-landsliði kvenna en þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem HSÍ sendi frá sér í dag. Æfingarnar munu fara fram dagana 24.-27. júní en í liðinu er blanda af eldri leikmönnum sem hafa verið nálgt eða í kringum A-landsliðið undanfarin ár.

Þá eru einnig leikmenn í hópnum sem hafa staðið sig vel með yngri landsliðum Íslands. „Við viljum kynnast fleiri leikmönnum og víkka sjóndeildarhringinn áður en við veljum næsta hóp, það er töluverður tími núna í næsta verkefni og því rétt að gefa fleirum tækifæri á að mæta á æfingar hjá okkur,“ sagði Arnar Pétursson um valið á hópnum.

Landsliðshópur Íslands:

Alexandra Líf Arnarsdóttir, Haukar
Ásdís Guðmundsdóttir, KA/Þór
Ásdís Þóra Ágústsdóttir, Valur
Berta Rut Harðardóttir, Haukar
Elín Rósa Magnúsdóttir, Valur
Eva Dís Sigurðardóttir, Afturelding
Harpa María Friðgeirsdóttir, Fram
Harpa Valey Gylfadóttir, ÍBV
Hulda Dís Þrastardóttir, Selfoss
Ída Bjarklind Magnúsdóttir, Stjarnan
Jónína Hlín Hansdóttir, Fram
Karen Tinna Demian, Stjarnan
Katla María Magnúsdóttir, Stjarnan
Kristrún Steinþórsdóttir, Fram
Lena Margrét Valdimarsdóttir, Fram
Ragnhildur Edda Þórðardóttir, Valur
Rakel Sara Elvarsdóttir, KA/Þór
Saga Sif Gísladóttir, Haukar
Sara Sif Helgadóttir, Fram
Tinna Sól Björgvinsdóttir, HK
Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir, HK

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert