Hin norska Nora Mørk hefur fengið samningi sínum við CSM Búkarest í Rúmeníu rift og gert samninig við Vipers í heimalandinu. Mørk er ein allra besta handknattleikskona heims.
Móðir Mørk greindist með brjóstakrabbamein fyrir þremur vikum síðan og ákvað norska landsliðskonan að flytja aftur heim í kjölfarið. Hefur hún verið frá keppni síðustu mánuði vegna krossbandsslita í hné.
„Þeir sem þekkja mig vita að fjölskyldan er mér allt og mamma er mér afar kær. Ég vil því koma heim og átt möguleika á að fara heim til Óslóar þegar ég get. Ég gat ekki hugsað mér að vera áfram í Rúmeníu á meðan mamma glímir við þetta,“ sagði Mørk í samtali við TV2 í Noregi.
Mørk var markahæst allra á Ólympíuleikunum í Rió 2016 og markahæst á EM í Svíþjóð sama ár og HM í Þýskalandi 2017.