Fjórir nýliðar í æfingahópnum

Katrín Tinna Jensdóttir og Lovísa Thompson eru báðar í æfingahópnum.
Katrín Tinna Jensdóttir og Lovísa Thompson eru báðar í æfingahópnum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Arnar Pétursson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handknattleik, hefur valið 19 leikmenn til æfinga en hópurinn mun hittast og æfa saman í Vestmannaeyjum, dagana 28. september – 3. október.

Næsta landsliðsverkefni hjá kvennalandsliðinu er 4.-6. desember næstkomandi þegar liðið leikur gegn Norður-Makedóníu, Litháen og Grikklandi í undankeppni HM. Riðilinn verður leikinn í Norður-Makedóníu.

Vegna kórónuveirunnar var ekki hægt að velja leikmenn sem spila erlendis í landsliðshópinn að þessu sinni að því er fram kemur í fréttatilkynningu HSÍ.

Markmenn:
Hafdís Renötudóttir, Fram 26 / 1
Katrín Ósk Magnúsdóttir, Fram 0 / 0
Saga Sif Gísladóttir, Valur 0 / 0

Vinstra horn:
Perla Ruth Albertsdóttir,  Fram 22 / 25
Sigríður Hauksdóttir, HK 14 / 31

Vinstri skytta:
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, ÍBV 32 / 60
Mariam Eradze, Valur 1 / 0
Ragnheiður Júlíusdóttir, Fram 25 / 24
Kristrún Steinþórsdóttir, Fram 0 / 0

Leikstjórnendur:
Eva Björk Davíðsdóttir, Stjarnan 35 / 27
Lovísa Thompson, Valur 18 / 28
Sunna Jónsdóttir, ÍBV 56 / 42

Hægri skytta:
Birna Berg Haraldsdóttir, ÍBV / 112
Rut Jónsdóttir, KA/Þór 94 / 191

Hægra horn:
Tinna Sól Björgvinsdóttir, HK 0 / 0
Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Valur 28 / 14

Línumenn:
Arna Sif Pálsdóttir, Valur 150 / 282
Katrín Tinna Jensdóttir, Stjarnan 0 / 0
Steinunn Björnsdóttir, Fram 33 / 23



Tinna Sól Björgvinsdóttir er nýliði í hópnum.
Tinna Sól Björgvinsdóttir er nýliði í hópnum. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert