Fór á kostum í Danmörku

Elín Jóna Þorsteinsdóttir er að gera góða hluti í Danmörku.
Elín Jóna Þorsteinsdóttir er að gera góða hluti í Danmörku. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Vendsyssel mátti þola naumt 20:18-tap fyrir Herning í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Er liðið enn án sigurs eftir fimm leiki á meðan Herning er með fullt hús stiga. 

Elín Jóna Þorsteinsdóttir fór á kostum í marki Vendsyssel og varði 14 skot og var með rúmlega 41 prósenta markvörslu. Steinunn Hansdóttir skoraði eitt mark fyrir liðið. 

Vendsyssel fór upp úr B-deildinni og upp í efstu deild á síðustu leiktíð. Er liðið í neðsta sæti með aðeins eitt stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert