Haukar mun sterkari en Eyjamenn

Fannar Friðgeirsson skýtur að marki Hauka í kvöld. Orri Freyr …
Fannar Friðgeirsson skýtur að marki Hauka í kvöld. Orri Freyr Þorkelsson og Atli Már Báruson eru til varnar. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Haukar eru með fullt hús stiga í Olísdeild karla í handbolta eftir tvær umferðir en Haukar höfðu betur gegn ÍBV á heimavelli í dag, 30:23. 

Haukar fóru gríðarlega vel af stað og komust í 8:2 snemma leiks. ÍBV lagaði stöðuna fyrir hálfleik og var staðan í leikhléi 14:10. Tókst ÍBV ekki að minnka muninn í seinni hálfleik og Haukar sigldu öruggum sigri í hús. 

Orri Freyr Þorkelsson skoraði átta mörk fyrir Hauka, Geir Guðmundsson sex og Brynjólfur Snær Brynjólfsson skoraði fjögur. Theodór Sigurbjörnsson var markahæstur hjá ÍBV með sjö mörk og Hákon Daði Styrmisson og Kári Kristján Kristjánsson skoruðu fimm. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert