Naumur sigur Hauka í grannaslagnum

Ragnheiður Ragnarsdóttir skoraði sjö fyrir Hauka.
Ragnheiður Ragnarsdóttir skoraði sjö fyrir Hauka. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Haukar höfðu betur gegn FH, 26:25, á heimavelli í grannaslag í Olísdeild kvenna í handbolta í dag. 

FH var skrefinu á undan nánast allan fyrri hálfleikinn en góður kafli Hauka undir lok hálfleiksins varð til þess að staðan í hálfleik var jöfn, 13:13. 

Haukar komust snemma í 18:15 í seinni hálfleik en FH gafst ekki upp og minnkaði muninn í 24:23 fimm mínútum fyrir leikslok. Haukar voru hins vegar sterkari í blálokin og fögnuðu sigri. 

Ragnheiður Ragnarsdóttir skoraði sjö mörk fyrir Hauka og Sara Odden fimm. Britney Cots skoraði ellefu fyrir FH og Fanney Þóra Þórsdóttir fjögur. 

Haukar eru með tvö stig eftir tvo leiki en nýliðar FH eru án stiga. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert