Stjarnan gerði góða ferð norður

Helena Rut Örvarsdóttir skoraði tíu mörk.
Helena Rut Örvarsdóttir skoraði tíu mörk. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Stjarnan fer vel af stað í Olísdeild kvenna í handbolta, en liðið vann sterkan 23:21-sigur á KA/Þór á útivelli í dag. 

KA/Þór fór mun betur af stað og komst snemma í 7:3. Stjarnan sótti í sig veðrið og var staðan í hálfleik 13:11, norðankonum í vil.

Það tók Stjörnuna sjö mínútur að jafna í 16:16 í seinni hálfleik og korteri fyrir leikslok var staðan orðin 21:17. Stjarnan hélt út og vann að lokum tveggja marka sigur. 

Helena Rut Örvarsdóttir skoraði tíu mörk fyrir Stjörnuna, Sólveig Lára Kjærnested fimm og Eva Björk Davíðsdóttir fjögur. Rut Jónsdóttir skoraði sex fyrir KA/Þór og Martha Hermannsdóttir og Rakel Sara Elvarsdóttir fjögur hvor. 

Stjarnan er með fullt hús stiga eftir tvo leiki og KA/Þór með eitt stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert