Sækja leikmann til Rúmeníu

Þorvaldur Sigurðsson, þjálfari Þórs.
Þorvaldur Sigurðsson, þjálfari Þórs. Ljósmynd/Þórir

Handknattleiksdeild Þórs hefur bætt við leikmanni í hópinn en liðið leikur í efstu deild karla, Olísdeildinni.

Þór hefur samið við Viorel Bosca sem er 22 ára örvhent skytta samkvæmt fréttatilkynningu frá félaginu. 

Þar segir ennfremur:

„Bosca kemur frá Rúmeníu, hann er 192 cm á hæð og 92 kíló.  Hann lék allan sinn feril til þessa með rúmenska félaginu HC Baia Mare þar til hann gekk til liðs við Hubo Initia Hasselt í Belgíu.  Þess utan hefur Bosca spilað með yngri landsliðum Rúmeníu.  Viorel Bosca verður löglegur með Þór í fjórðu umferð þegar Þór tekur á móti ÍBV.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert