Í bikarúrslit í Danmörku

Óðinn á fleygiferð í leik með Holstebro.
Óðinn á fleygiferð í leik með Holstebro. Ljósmynd/Holstebro

TTH Holstebro er komið í bikarúrslit í danska handboltanum eftir nauman 29:28-sigur á Skanderborg í undanúrslitum í dag. 

Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði eitt mark úr fjórum skotum fyrir Holstebro og átti ekki sinn besta dag, en það kom ekki að sök. 

Óðinn og félagar mæta annað hvor fyrrverandi liði Óðins í GOG eða Bjerringbro-Silkeborg í úrslitaleiknum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert