Átti stóran þátt í sigri Kolding

Ágúst Elí Björgvinsson.
Ágúst Elí Björgvinsson.

Ágúst Elí Björgvinsson, átti stóran þátt í öruggum sigri Kolding á Frederica 31:22 í danska handboltanum í kvöld. 

Ágúst Elí varði 17 skot í leiknum og þar af eitt vítakast. Var hann með 46% markvörslu í leiknum og varð því nánast annað hvert skot sem kom á markið. 

Annar markvörður, Daníel Freyr Ágústsson, lék í Svíþjóð í kvöld. Daníel varði 5 skot í marki Guif sem tapaði 21:30 fyrir Hallby. Daníel var með 25% markvörslu þann tíma sem hann var inn á. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert