Aron Pálmarson og samherjar hans í spænska handboltaliðinu Barcelona gerðu góða ferð til Frakklands og unnu Nantes í Meistaradeild Evrópu í kvöld, 35:27.
Aron átti afar góðan leik fyrir Barcelona og skoraði sex mörk í sjö skotum og lagði auk þess upp nokkur til viðbótar. Barcelona hefur farið vel af stað í B-riðli og unnið alla þrjá leiki sína til þessa.
Í Noregi hefði Kielce frá Póllandi betur gegn Elverum, 31:22. Haukur Þrastarson og Sigvaldi Björn Guðjónsson skoruðu eitt mark hvor fyrir Kielce en sá síðarnefndi kom til Kielce frá Elverum fyrir leiktíðina.
Hefur Kielce unnið tvo af þremur leikjum sínum í A-riðli og þar af tvo í röð.