Liðsstyrkur á leið til Eyja

Sveinn José Rivera í leik með Valsmönnum í nóvember 2017.
Sveinn José Rivera í leik með Valsmönnum í nóvember 2017. Haraldur Jónasson / Hari

Línumaðurinn Sveinn José Rivera er að ganga til liðs við handknattleikslið ÍBV en það er handbolti.is sem greinir frá þessu.

Sveinn lék með Aftureldingu í úrvalsdeild karla, Olísdeildinni, á síðustu leiktíð en hann varð meðal annars bikarmeistari með Val árið 2017.

Hann skoraði 37 mörk í 20 leikjum með Aftureldingu á síðustu leiktíð en er að flytja til Vestmannaeyja og hefur því ákveðið að söðla um að því er fram kemur á handbolti.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert