Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði þrjú mörk fyrir Kristianstad þegar liðið heimsótti Füchse Berlín í Evrópudeildinni í handknattleik í Þýskalandi í kvöld.
Leiknum lauk með 30:23-sigri þýska liðsins en Teitur Örn Einarsson skorað tvö mörk fyrir Kristianstad.
Jafnfræði var með liðunum í fyrri hálfleik og leiddi Füchse Berlín með þremur mörkum í hálfleik, 15:12.
Þýska liðið var mun sterkara í síðari hálfleik og náði snemma þrettán marka forskoti, 26:13. Sænska liðin tókst aldrei að koma til baka eftir það.
Kristianstad er án stiga í B-riðli keppninnar en liðið mætir Dinamo Bucuresti á heimavelli í næstu umferð.