Skoraði átta mörk í Þýskalandi

Arnór Þór Gunnarsson
Arnór Þór Gunnarsson mbl.is/Eggert Jóhannesson

Arnór Þór Gunnarsson og Ragnar Jóhannsson urðu að þola 30:25-tap gegn toppliði Flensburg í þýsku efstu deildinni í handknattleik í kvöld. Arnór Þór skoraði fimm mörk fyrir heimamenn í Bergischer en Ragnar komst ekki á blað.

Hildigunn­ur Ein­ars­dótt­ir landsliðskona skoraði eitt mark fyrir Leverkusen sem tapaði naumlega á heimavelli gegn Blomberg-Lippe, 27:26, í efstu deild kvenna. Í B-deild kvenna skoraði Dí­ana Dögg Magnús­dótt­ir átta mörk fyrir Sachsen Zwickau sem vann 34:25-sigur á Kirchhof. Díana og stöllur eru í 3. sæti eftir sex umferðir.

Díana Dögg Magnúsdóttir
Díana Dögg Magnúsdóttir mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert