Leikjum kvennalandsliðsins frestað

Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir í leik gegn Frakklandi á síðasta ári.
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir í leik gegn Frakklandi á síðasta ári. Kristinn Magnússon

Forráðamenn evrópska handboltasambandsins hafa tilkynnt um frestun á öllum riðlum í forkeppni HM kvenna.

Fyrirhugað var að íslenska landsliðið í handknattleik kvenna hæfi leik í Norður Makedóníu í byrjun desember og myndi spila þar þrjá leiki en þeim hefur nú verið frestað. Áætlað er að leikirnir þrír fari fram dagana 17. – 19. mars á næsta ári.

Í tilkynningu frá Handknattleikssambandi Íslands kemur fram að helstu ástæður frestunarinnar séu allar tengdar Covid-19 faraldrinum.

Þannig séu flugsamgöngur takmarkaðar í Evrópu, undirbúningur sé erfiður þar sem reglur um æfingar og keppni eru mismunandi á milli landa, auk þess sem mikil áhætta sé fólgin í því að fá allt að 100 manns víðsvegar að úr Evrópu á sama staðinn og viðhalda þar sóttvörnum. Þá sé alltaf hætta á frestun vegna smita sem greinast á leikstað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert