Smitaðist rétt fyrir EM

Rúmenska liðið glímir við kórónuveirusmit.
Rúmenska liðið glímir við kórónuveirusmit. Ljósmynd/EHF

Einn leikmaður rúmenska kvennalandsliðsins í handbolta greindist jákvæð fyrir kórónuveirunni er hún fór í skimun við komuna til Danmerkur þar sem EM fer fram næstu vikur. EHF greindi frá í dag.

Leikmaðurinn hefur ekki verið nafngreindur en hún er komin í einangrun. Aðrir í rúmenska hópnum voru ekki með veiruna, en fara aftur í skimun í dag og á morgun. Rúmenska liði fær ekki að æfa saman í keppnishöllinni fyrr en í fyrsta lagi annað kvöld vegna atviksins.

Fyrsti leikur Rúmeníu á EM verður á fimmtudaginn kemur gegn Þýskalandi. Línukonan Crina Pintea greindist með veiruna áður en rúmenska liðið kom til Danmerkur og verður liðið vængbrotið í fyrstu leikjum Evrópumótsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert