Rúmenía náði í fyrsta sigurinn

Cristina Laslo skoraði sex mörk fyrir Rúmeníu.
Cristina Laslo skoraði sex mörk fyrir Rúmeníu. Ljósmynd/EHF

Rúmenía vann sinn fyrsta leik á Evrópumóti kvenna í handbolta í kvöld er liðið lagði Pólland 28:24. Pólland var með 15:11-forskot í hálfleik en rúmenska liðið var sterkara í seinni hálfleik. Með sigrinum tryggði Rúmenía sér sæti í milliriðlum.

Eftir góðan fyrri hálfleik lenti Pólland á rúmenskum vegg í seinni hálfleik og skoraði pólska liðið aðeins fjögur mörk á fyrstu 18 mínútum seinni hálfleiks og Rúmenía lagði grunninn að góðum sigri.

Cristina Neagu var markahæst hjá Rúmeníu með átta mörk og þær Cristina Laslo og Lorena Ostase gerðu sex mörk hvor. Aleksandra Rosiak skoraði sjö mörk fyrir Pólland.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert