Áhlaup Hauka kom of seint gegn KA/Þór

KA/Þór vann góðan sigur á Haukum.
KA/Þór vann góðan sigur á Haukum. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

KA/Þór vann sinn annan sigur í Olísdeild kvenna á leiktíðinni er liðið gerði góða ferð í Hafnarfjörðinn og vann 21:20-sigur á Haukum.

Gestirnir frá Akureyri voru sterkari í fyrri hálfleik og var staðan í leikhléi 13:10. Þegar stundarfjórðungur var til leiksloka var KA/Þór komið í sjö marka forystu, 19:12.

Þá kom glæsilegur kafli hjá Haukum sem minnkuðu muninn í 20:19, en KA/Þór skoraði næsta mark, 21:19, áður en Haukar minnkuðu muninn á síðustu sekúndunum.

Rut Jónsdóttir átti afar góðan leik fyrir KA/Þór og skoraði níu mörk og Aldís Ásta Heimisdóttir skoraði fjögur. Matea Lonac varði 18 skot í markinu. Sara Odden og Birta Lind Jóhannsdóttir skoruðu fimm mörk hvor fyrir Hauka.

KA/Þór er í þriðja sæti með fimm stig og Haukar í sjöunda sæti með tvö stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert