Gamla ljósmyndin: Virðingarvottur

Íþrótta­deild Morg­un­blaðsins og mbl.is held­ur áfram að gramsa í mynda­safni Morg­un­blaðsins og birta á mbl.is á laug­ar­dög­um.

Alexander Petersson leikur þessa dagana með íslenska landsliðinu á HM í handknattleik í Egyptalandi en liðið mætir Alsír í dag. 

Alexander varð fertugur síðasta sumar og er annar tveggja sem unnu til verðlauna á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008 sem enn eru í landsliðinu. Er þá átt við leikmenn en hinn er Björgvin Páll Gústavsson. Guðmundur Guðmundsson er einnig landsliðsþjálfari eins og í Peking og aðstoðarþjálfarinn Gunnar Magnússon var einnig í þjálfarateyminu 2008. 

Á meðfylgjandi mynd er Alexander í þann mun að skora gegn Túnis í sigurleik á Ólympíuleikunum í London sumarið 2012. Myndina tók Kjartan Þorbjörnsson eða Golli sem myndaði á leikunum fyrir Morgunblaðið og mbl.is. 

Alexander er af lettnesku bergi brotinn en kom til Íslands árið 1998 og gekk til liðs við Gróttu/KR. Alexander fékk í framhaldinu íslenskan ríkisborgararétt árið 2003 og varð gjaldgengur með landsliðinu árið 2005. Síðan þá hefur hann stoltur leikið tæplega 200 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og verið mjög vinsæll hjá stuðningsmönnum íslenska landsliðsins. 

Á leikunum í London má segja að Alexander hafi vökvað ræturnar og sýnt heimalandinu virðingu með því mæta í leikina með svitaband í fánalitum Lettlands. Bandið sést vel á þessari mynd Golla. 

„Þetta er fyr­ir fjöl­skyldu mína í Lett­landi. Þau eru öll að fylgj­ast með og eru ánægð með þetta,“ sagði Al­ex­and­er Peters­son þegar mbl.is spurði hann út í svitabandið í London hinn 31. júlí 2012.

Alexander vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum 2008 og til bronsverðlauna á EM í Austurríki árið 2010. Hann hefur leikið sem atvinnumaður í Þýskalandi frá árinu 2003 og varð þýskur meistari 2016 og 2017 með Rhein-Neckar Löwen. 

Alexander hlaut sæmdarheitið Íþróttamaður ársins hjá Samtökum íþróttafréttamanna árið 2010 og var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 2008.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert