Toppslagnum frestað

Úr leik liðanna á síðustu leiktíð.
Úr leik liðanna á síðustu leiktíð. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Toppslag KA/Þórs og Vals í Olísdeild kvenna í handknattleik hefur verið frestað vegna veðurs en liðin áttu að mætast í Origo-höllinni á Hlíðarenda klukkan 15 í dag.

Þetta kemur fram á heimasíðu KA en þar segir að leikjum félagsins í bæði handknattleik og fótbolta hafi verið frestað. Nýr leiktími hefur ekki verið birtur en fréttin verður uppfærð í kjölfarið.

Valur er á toppi deildarinnar með átta stig eftir fjóra sigra í fyrstu fimm leikjum sínum en norðankonur koma næstar með sjö stig, þrjá sigra og eitt jafntefli.

Uppfært kl. 12:45: Leikurinn fer fram mánudaginn 24. janúar klukkan 18:30.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert