Lykilmenn Vals úrskurðaðir í bann

Anton Rúnarsson og Patrekur Stefánsson eigast við í leiknum umrædda …
Anton Rúnarsson og Patrekur Stefánsson eigast við í leiknum umrædda á Akureyri á dögunum. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Valsmennirnir Stiven Tobar Valencia og Anton Rúnarsson voru báðir úrskurðaðir í eins leiks bann af aganefnd HSÍ í gær.

Þeir missa því báðir af leiknum gegn FH í 12. umferð úrvalsdeildarinnar, Olísdeildarinnar, í Origo-höllinni á Hlíðarenda mánudaginn 1. mars.

Bannið hljóta þeir fyrir óíþróttamannslega framkomu eftir leik KA og Vals á Akureyri sem lauk með 27:27-jafntefli.

Þeir eru báðir lykilmenn í liði Vals sem er í þriðja sæti Olísdeildarinnar með 13 stig eftir fyrstu ellefu umferðirnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert