Skoraði sigurmark í fyrsta leik

Elvar Ásgeirsson byrjar vel í Frakklandi.
Elvar Ásgeirsson byrjar vel í Frakklandi. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Mosfellingurinn Elvar Ásgeirsson fer afar vel af stað með Nancy í frönsku B-deildinni í handbolta en hann skoraði sigurmark liðsins í 31:30-heimasigri á Massy í sínum fyrsta leik í kvöld. 

Elvar kom til Nancy frá Stuttgart í Þýskalandi á dögunum og var fljótur að láta að sér kveða í nýju landi. Elvar var næstmarkahæstur í liði Nancy með sex mörk úr tíu skotum. 

Nancy er í fjórða sæti deildarinnar með 20 stig eftir 15 leiki og í baráttu um sæti í efstu deild. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert