Sterkur útisigur ÍBV á Val

Lovísa Thompson skýtur að marki ÍBV á Hlíðarenda í dag.
Lovísa Thompson skýtur að marki ÍBV á Hlíðarenda í dag. Mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

ÍBV vann sterkan 21:20-sigur á Val í Olísdeild kvenna í handbolta í Origo-höllinni á Hlíðarenda í dag. Leikurinn var æsispennandi og gat Valur jafnað metin undir lokin en það tókst ekki. 

ÍBV byrjaði betur og komst í 3:1 og voru Eyjakonur með frumkvæðið stærstan hluta fyrri hálfleiks. Valsliðið var þó ekki langt undan og var staðan í hálfleik 12:11. 

Seinni hálfleikurinn spilaðist svipað og ÍBV skrefinu á undan. Staðan var 21:19 þegar átta mínútur voru eftir, en Valskonur náðu aðeins að skora eitt mark gegn engu á lokakaflanum og ÍBV fagnaði góðum sigri. 

Birna Berg Haraldsdóttir skoraði sjö mörk fyrir ÍBV á meðan Þórey Anna Ásgerisdóttir gerði sex fyrir Val. 

Valur er í þriðja sæti með tíu stig, en liðið hefur nú leikið fjóra leiki í röð án sigurs og tapað síðustu tveimur. ÍBV er í sjötta sæti með níu stig. 

Valur 20:21 ÍBV opna loka
60. mín. Marta Wawrzynkowska (ÍBV) varði skot Mariam með skot í vörnina og Marta sér um rest. Örfáar sekúndur eftir og ÍBV í kjörstöðu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert