Fyrsti leikurinn í 13 mánuði

Andrea Jacobsen er mætt aftur á völlinn.
Andrea Jacobsen er mætt aftur á völlinn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Handknattleikskonan Andrea Jacobsen lék sinn fyrsta leik í 13 mánuði í gærkvöldi er hún lék með Kristianstad gegn Önnered í sænsku úrvalsdeildinni. Andrea sleit krossband í hné í febrúar á síðasta ári og hefur verið lengi frá keppni vegna þessa.

Hún hefur verið á skýrslu í tveimur síðustu leikjum en ekki komið við sögu fyrr en í gær í 30:20-útisigri. Skoraði hún þrjú mörk í fimm skotum. Einn leikur er eftir af deildarkeppninni og tekur síðan við úrslitakeppni þar sem átta efstu liðin berjast um sænska meistaratitilinn. 

Kristianstad er í fimmta sæti og öruggt með sæti í úrslitakeppninni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert