Aron spænskur bikarmeistari

Aron Pálmarsson og félagar eru bikarmeistarar.
Aron Pálmarsson og félagar eru bikarmeistarar. Ljósmynd/Barcelona

Barcelona varð í kvöld spænskur bikarmeistari áttunda árið í röð er liðið vann öruggan 35:27-sigur á Ademar León í úrslitaleik. 

Aron Pálmarsson skoraði eitt mark með Barcelona en hann hefur orðið bikarmeistari á hverju ári með liðinu síðan hann kom til þess frá Veszprém árið 2017. 

Barcelona hefur orðið spænskur bikarmeistari 25 sinnum og er langsigursælasta lið Spánar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert