Samdi í Svíþjóð

Ásdís Þóra Ágústsdóttir í leik með Val í janúar á …
Ásdís Þóra Ágústsdóttir í leik með Val í janúar á síðasta ári. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Handknattleikskonan Ásdís Þóra Ágústsdóttir er á leið til sænska úrvalsdeildarfélagsins Lugi.

Þetta staðfesti sænska félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag en Ásdís mun ganga til liðs við Lugi eftir að tímabilinu hér heima lýkur í vor.

Ásdís er uppalin hjá Val á Hlíðarenda en hún skrifaði undir tveggja ára lánssamning við sænska félagið en með möguleika á því að rifta honum eftir eitt ár.

Skyttan er einungis 19 ára gömul en hún hefur einnig leikið með öllum yngri landsliðum Íslands og er í U19-ára landsliðshópnum sem kemur saman til æfinga um þar næstu helgi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert