Blóðheitur sjálfboðaliði á ritaraborðinu

Úr leik liðanna á síðustu leiktíð.
Úr leik liðanna á síðustu leiktíð. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Handknattleiksdeild KA/Þórs hefur sent frá sér harðorða yfirlýsingu eftir úrskurð endurnýjaðs Áfrýjunardómstóls Handknattleikssambands Íslands um að KA/Þór og Stjarnan þurfi að mætast á nýjan leik í úrvalsdeild kvenna, Olísdeildinni.

Mistök áttu sér stað á ritaraborði í leik liðanna í TM-höllinni í Garðabæ 13. febrúar með þeim afleiðingum að eitt auka mark var óvart skráð á KA/Þór. 

Leiknum, sem átti að ljúka með 26:26-jafntefli, lauk því með 27:26-sigri Akureyringa en þau úrslit hafa verið dæmd ógild.

„Þessi dómur er gríðarlega fordæmisgefandi fyrir handknattleikshreyfinguna – og liggur nú ljóst fyrir að dómarar þurfa rækilega að fara yfir að leikskýrslur séu hárréttar og að telja mörkin í hröðum leik til þess að þetta komi ekki fyrir aftur – því þegar mikið er undir og blóðheitur sjálfboðaliði situr á ritaraborðinu er vald hans ansi mikið orðið til þess að geta haft þessi áhrif að leikur gæti orðið spilaður aftur, sínu liði (heimaliðinu og framkvæmdaraðilanum) til hagsbóta,“ segir meðal annnars í yfirlýsingu Akureyringa.

Yfirlýsinguna má sjá í heild sinni hér fyrir neðan.

Að kæra sjálfan sig og græða á því

Flestum er kunnugt um málsatvik í leik Stjörnunnar og KA/Þórs sem fram fór í Olísdeild kvenna í febrúar. KA/Þór vann 27-26. Eftir leikinn kom í ljós að einu marki hefði verið oftalið hjá KA/Þór og úrslit leiksins því 26-26. Eftir tvo mánuði af málaferlum er komin niðurstaða frá áfrýjunardómstól HSÍ að leikinn skuli endurtaka. KA/Þór hefur reynt eftir bestu getu að reka ekki málið í fjölmiðlum og senda frá sér pistla á meðan máli stendur en getur ekki orða bundist eftir þessa ótrúlegu niðurstöðu.

Atvikið gerist í stöðunni 17-12 í fyrri hálfleik

Allur síðari háflleikurinn, allt upplegg í sóknum – þá sérstaklega á lokasóknum leiksins, miðast út frá stöðunni sem allir í húsinu héldu að væri. Að hanga á bolta, spila langa sókn, drífa sig til baka og taka ekki fráköst og svo framvegis – allt saman hangir það við að vera með eins eða tveggja marka forystu eftir frábæran fyrri hálfleik. Ef staðan hefði verið öðruvísi á töflunni hefðu lokasóknir liðanna verið öðruvísi og forskotið sem myndaðist í fyrri hálfleik verið nýtt öðruvísi. Þetta vita allir sem bæði spila og hafa þjálfað handbolta. Hvert er réttlætið að spila leikinn frá 0-0??

Hver gerir mistökin og fyrir hvern vinnur hann?

Aðildarfélög HSÍ annast framkvæmd heimaleikja sinna og greiða kostnað vegna þeirra nema mótareglur kveði á um annað. Þá annast aðildarfélög HSÍ framkvæmd þeirra leikja er mótanefnd kann að fela þeim. Þetta kemur beint upp úr reglugerð HSÍ um handknattleiksmót. Til þess að einfalda þetta fyrir lesendum annaðist STJARNAN framkvæmd leiksins. STJARNAN útvegaði tímaverði og ritara sem gerðu þessi mistök. Ritarar og tímaverðir í þessum leik eru sannarlega sjálfboðaliðar hjá Stjörnunni og mistökin sem þeir gera eru kærð. KA/Þór er ekkert nema fórnarlamb aðstæðna en eru samt dregin fyrir rétt og látin verja mistök sem fulltrúar Stjörnunnar gera.

Ömurleg umgjörð

Það er kannski ekkert skrítið að fólk hafi átt erfitt með að átta sig á stöðunni í leiknum en eftir nokkrar sekúndur í síðari hálfleik gefur klukkan sig í TM-höllinni og restin af leiknum í EFSTU DEILD KVENNA Á ÍSLANDI er spiluð án þess að leikmenn eða þjálfarar sjái hvað er mikið eftir af leiknum og staðan er sýnd á flettispjöldum á ritaraboði. Marga hluti er hægt að tína til í umgjörð Stjörnunnar og fóru meðal annars 12 mínútur í það að reyna koma klukkunni í gang aftur þar sem leikurinn var stopp. Ljóst er að þetta er ekki í fyrsta skipti sem þeir klikka á svona hlutum en aðeins nokkrum dögum áður í leik Stjörnunnar og ÍBV í Olís-deild karla var mark vitlaust skráð á klukkuna en sem betur fer tóku vökul augu sjónvarpslýsanda Stöðvar 2 eftir því og var það leiðrétt um miðjan síðari hálfleik. Ætlar HSÍ að leyfa Stjörnunni að komast upp með þetta?

Fordæmisgefandi?

Hversu fordæmisgefandi er þessi niðurstaða dómsins? Geta nú sjálfboðaliðar félaganna í deildunum á Íslandi unnið sér í haginn og þegar úrslit leiks líta út fyrir að vera ekki í þá átt sem þeir vilja með því að breyta stöðunni á töflunni og vona að enginn taki eftir því fyrr en eftir leik – og í kjölfarið kært framkvæmd leiksins og fengið hann endurspilaðan? Er það það sem við viljum? Hvernig á að sporna við því að menn nýti sér þetta fordæmi og svindli til þess að fá leiki endurtekna?

Kostnaðurinn gríðarlegur

Í því umhverfi sem íslenskur kvennahandbolti er rekinn er líklegt að hvert lið í Olísdeild kvenna sé rekið fyrir á bilinu 7-15 milljónir króna á ári. Kostnaður KA/Þórs við þennan málarekstur, þar sem félagið var fórnarlamb aðstæðna í ömurlegri umgjörð í TM-höllinni, er gríðarlegur. Það er ferðakostnaður, vinnutap leikmanna, lögfræðikostnaður og vinnustundir starfsmanna og sjálfboðaliða KA/Þórs. Nú þegar er kostnaðurinn orðinn u.þ.b. 10% af veltu KA/Þórs árið 2020 og kominn yfir milljón.

Áfrýjunin sem var aldrei send

Til þess að toppa vitleysuna þá vann KA/Þór málið upphaflega fyrir dómstól HSÍ en Stjarnan áfrýjaði niðurstöðunni. KA/Þór fékk aldrei að vita af þeirri áfrýjun og fékk aldrei að bera varnir fyrir eitt né neitt í því máli. Það var ekki fyrr en niðurstaða var klár í það mál að KA/Þór fékk að heyra af því að Stjarnan hefði áfrýjað. Þá tók við ferli að fá málið endurupptekið og að fá nýja dómara. Það tók sinn tíma og flækjustigið gríðarlegt – en Stjarnan mótmælti því harðlega, að KA/Þór fengi sanngjarna málsmeðferð.

Ljóst er að frá og með þeirri mínútu sem áfrýjunardómstóll númer 1 kvað upp dóm sinn að það yrði á brattan að sækja fyrir KA/Þór. Í áfrýjunardómstólnum sem „gleymdi“ að láta KA/Þór vita af áfrýjuninni sat m.a. forseti Hæstaréttar. Það var því alveg vitað að þeir þrír nýju dómarar sem tóku við málinu myndu örugglega ekki fara gegn fyrri niðurstöðu m.a. sitjandi forseti Hæstaréttar sem sagði sig frá málinu eftir klúðrið fræga. Enda kom það á daginn.

Lokaorð

Þessi dómur er gríðarlega fordæmisgefandi fyrir handknattleikshreyfinguna – og liggur nú ljóst fyrir að dómarar þurfa rækilega að fara yfir að leikskýrslur séu hárréttar og telja mörkin í hröðum leik til þess að þetta komi ekki fyrir aftur – því þegar mikið er undir og blóðheitur sjálfboðaliði situr á ritaraborðinu er vald hans ansi mikið orðið til þess að geta haft þessi áhrif að leikur gæti orðið spilaður aftur, sínu liði (heimaliðinu og framkvæmdaraðilanum) til hagsbóta.

Að lokum vill KA/Þór benda á hversu fáránlegt það er að hvorki Stjarnan (sem gerir mistökin og kærir sjálfa sig) né HSÍ (sem samkvæmt dómnum hafa dómarana í vinnu sem gera „mistökin“) beri kostnað eða greiði nokkurn hlut af þeim kostnaði sem þetta hefur kostað KA/Þór.

Það eru sjálfboðaliðar sem leggja nótt við dag að láta landsbyggðarliðin ganga upp með tilheyrandi peningasöfnun og fjáröflunum. Enginn þessara sjálfboðaliða er tilbúinn að leggja á sig þessa vinnu til þess að standa í málaferlum og öðru eins rugli og hefur verið í gangi undanfarna tvo mánuði. Svona fyrir utan að leikmenn og þjálfarar KA/Þórs þurfa að leggja á sig aðra dagsferð til Garðabæjar til þess að spila leikinn aftur, með tilheyrandi vinnutapi og öðru. Þetta er, eins og svo oft áður, hreinlega aðför að landsbyggðinni.

Takk fyrir þetta, Stjarnan og HSÍ. Þetta er og verður handboltaíþróttinni ekki til heilla. Málinu er ekki lokið og mun KA/Þór halda áfram að leita réttar síns.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert