HSÍ flýtir móti karlanna

Olísdeild karla fer af stað að nýju næsta fimmtudag.
Olísdeild karla fer af stað að nýju næsta fimmtudag. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

HSÍ hefur tekið ákvörðun um að breyta leikjafyrirkomulagi Íslandsmótsins í Olísdeild karla að beiðni formanna félaganna. Mun mótið hefjast að nýju 22. apríl.

Í yfirlýsingu frá sambandinu segir að fyrri ákvörðun hafi verið tekin með tilliti til sjónarmiða formanna félaganna um að byrja ekki of fljótt vegna meiðslahættu og að ekki yrði spilað í landsleikjahléi til að gæta jafnræðis milli félaga.

Á formannafundi í dag óskuðu félögin í ljósi umræðu undanfarna daga eftir því að falla frá framangreindum sjónarmiðum og hefja deildina samkvæmt fyrri tillögu HSÍ og jafnframt spila í landsleikjahléi, sem alla jöfnu er ekki gert en samkvæmt HSÍ verður horft fram hjá því í ljósi ástandsins í þjóðfélaginu.

Stjórn HSÍ féllst á þessa ósk og mun mótið sem áður segir hefjast að nýju 22. apríl. Deildinni mun því ljúka viku fyrr en áætlað var, þann 27. maí, og tekur þá við 8 liða úrslitakeppni.

„HSÍ harmar þá neikvæðu umræðu sem hefur verið síðastliðna daga og stóryrtar yfirlýsingar þjálfara og leikmanna sem voru ekki í samræmi við sjónarmið félaganna sem þeir starfa hjá,“ segir í yfirlýsingu HSÍ.

Formenn félaganna hafa sömuleiðis sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins og má lesa hana hér að neðan í heild sinni:

„Við undirritaðir formenn félaga í Olísdeild karla samþykkjum tillögu að leikjafyrirkomulagi sem lögð var fyrir formannafundi HSÍ í dag af HSÍ. Í tillögunni kemur fram breyting á leikjaniðurröðun og að leikið verður í landsleikjafríi til að ná samfellu í deildarkeppnina.

Við hörmum þá umræðu sem fór af stað eftir síðasta formannafund og áréttum að allar ákvarðanir og niðurstöður formannafunda eru algerlega á ábyrgð okkar formanna félaganna.

Við leggjum áherslu á að við erum einu forsvarsmenn félaganna gagnvart HSÍ og okkur ber að móta okkar afstöðu innan okkar félaga með þeim aðilum sem til þess eru þar bærir.

Við þær erfiðu aðstæður sem við búum við vegna Covid er mikilvægt að við stöndum saman og heil á bak við okkar sérsamband.

Við lýsum yfir fullum stuðningi við framkvæmdastjóra og nýkjörna stjórn HSÍ og vonum að við getum klárað Íslandsmótið með sem bestum hætti.

Reykjavík, 17.04.2021

Hannes Sigurðsson, formaður Aftureldingar

Ásgeir Jónsson, formaður FH

Bjarni K. Eysteinsson, formaður Fram

Kári Garðarsson, framkvæmdastjóri Gróttu

Þorgeir Haraldsson formaður Hauka

Davíð Óskarsson, formaður ÍBV

Sigurður Rúnarsson, formaður ÍR

Haddur Júlíus Stefánsson, formaður KA

Þórir Haraldsson, formaður Selfoss

Pétur Bjarnason, formaður Stjörnunnar

Gísli Gunnlaugsson, formaður Vals

Magnús Eggertsson, formaður Þórs“

Nýtt leikjaplan Olísdeildar karla má nálgast á heimasíðu HSÍ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert