Atkvæðamikill í Danmörku

Óðinn Þór Ríkharðsson mun leika með KA í úrvalsdeild karla …
Óðinn Þór Ríkharðsson mun leika með KA í úrvalsdeild karla á næstu leiktíð. mbl.is//Hari

Óðinn Þór Ríkharðsson átti góðan leik fyrir Holstebro þegar liðið fékk Skanderborg í heimsókn í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í dag.

Leiknum lauk með fimm marka sigri Holstebro, 34:29, en Óðinn Þór skoraði fjögur mörk úr níu skotum í leiknum.

Holstebro er með 5 stig í efsta sæti 2. riðils úrslitakeppninnar en tvö efstu liðin í riðlinum komast áfram í undanúrslit úrslitakeppninnar.

Í hinum riðlinum er GOG, lið Viktors Gísla Hallgrímssonar landsliðsmarkvarðar, í efsta sætinu með sex stig eftir tvo leiki og Bjerringbro/Silkeborg er í öðru sætinu með þrjú stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert