Ísland er í þriðja styrkleikaflokki fyrir dráttinn í riðla fyrir lokakeppni Evrópumóts karla í handknattleik 2022 sem fram fer í Ungverjalandi og Slóvakíu en dregið verður síðdegis í dag.
Eitt lið úr hverjum flokki er dregið í hvern riðil mótsins
1. flokkur: Noregur, Spánn, Þýskaland, Króatía, Slóvenía og Portúgal
2. flokkur: Svíþjóð, Rússland, Ungverjaland, Danmörk og Austurríki
3. flokkur: Ísland, Frakkland, Slóvakía, Hvít-Rússland, Tékkum og Norður-Makedónía.
4. flokkur: Holland, Svartfjallaland, Úkraína, Pólland, Bosnía og Litháen.
Fjögur lið verða dregin í sex riðla en riðlarnir verða leiknir á fimm á mismunandi stöðum í Ungverjalandi og Slóvakíu.