Alexander Petersson skoraði eitt mark fyrir Flensburg þegar liðið vann öruggan 32:24-heimasigur gegn Wetzlar í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag.
Þá gaf íslenska landsliðsmaðurinn þrjár stoðsendingar í leiknum en Flensburg er með 49 stig í efsta sæti deildarinnar og hefur tveggja stiga forskot á Kiel sem á leik til góða á Flensburg.
Þá unnu lærisveinar Guðmundar Þórðar Guðmundssonar í Melsungen 31:23-heimasigur gegn Göppingen.
Arnar Freyr Arnarsson komst ekki á blað hjá Melsungen og Gunnar Steinn Jónsson skoraði ekki fyrir Göppingen.
Melsungen er með 29 stig í níunda sæti deildarinnar en Göppingen er í fimmta sætinu með 35 stig.