Fór á kostum í Íslendingaslag

Ómar Ingi Magnússon hefur spilað frábærlega í Þýskalandi á tímabilinu.
Ómar Ingi Magnússon hefur spilað frábærlega í Þýskalandi á tímabilinu. AFP

Ómar Ingi Magnússon átti sannkallaðan stórleik fyrir Magdeburg þegar liðið vann 25:21-útisigur gegn Bergischer í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag.

Ómar Ingi skoraði átta mörk úr átta skotum og var næst markahæsti leikmaður Magdeburgar Arnór Þór Gunnarsson skoraði þrjú mörk fyrir Bergischer.

Magdebourg er með 40 stig í fjórða sæti deildarinnar en Bergischer er í áttunda sætinu með 29 stig, tveimur stigum frá Evrópusæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert