Öruggt hjá HK - Spenna hjá Gróttu og ÍR

HK er í góðri stöðu í undanúrslitum umspilsins.
HK er í góðri stöðu í undanúrslitum umspilsins. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Úrvalsdeildarlið HK vann öruggan sigur gegn 1. deildarliði Fjölnis/Fylkis í fyrri leik liðanna í umspili um laust sæti í efstu deild á næsta keppnistímabili. 

HK vann stósigur í Kórnum 27:15 og er komið með annan fótinn í úrslitarimmuna um laust sæti í efstu deild á næsta tímabili. 

Í hinni viðureign kvöldsins vann Grótta lið ÍR á Seltjarnarnesi eftir spennandi leik 16:15. Spennan í þeirri rimmu er því öllu meiri en bæði lið léku í 1. deild, Grill66 deildinni í vetur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert