Frá Vestmannaeyjum í Garðabæinn

Darija Zecevic er komin í Stjörnuna.
Darija Zecevic er komin í Stjörnuna. Ljósmynd/Stjarnan

Markvörðurinn Darija Zecevic hefur gert tveggja ára samning við handknattleiksdeild Stjörnunnar. Hún kemur til félagsins frá ÍBV þar sem hún hefur verið undanfarin tvö ár.

Zecevic, sem er frá Svartfjallalandi, er 23 ára. Hún lék með Koper í Slóveníu áður en hún fór til ÍBV en hún er uppalin hjá Buducnost, stærsta félagi Svartfjallalands.

Stjarnan hafnaði í fimmta sæti úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð en féll úr leik, einmitt á móti ÍBV, í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert