Halda samstarfinu áfram á Nesinu

Maksim Akbachev verður áfram hjá Gróttu.
Maksim Akbachev verður áfram hjá Gróttu. Ljósmynd/Grótta

Handknattleiksdeild Gróttu tilkynnti í dag um endurnýjun samnings við Maksim Akbachev og verður hann áfram aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla sem og yfirþjálfari yngri flokka félagsins.

Áður en hann gekk í raðir Gróttu og gerðist aðstoðarþjálfari Arnars Daða Arnarssonar hjá liðinu þjálfaði hann m.a. hjá Val og Haukum.

„Það eru miklar gleðifréttir að Maksim skuli taka þá ákvörðun að vera áfram mér til aðstoðar. Við höfum unnið lengi saman og hefur samstarf okkar gengið mjög vel,“ er haft eftir Arnari Daða í tilkynningu félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert