Naumt tap hjá Kristianstad

Teitur Örn Einarsson.
Teitur Örn Einarsson. Ljósmynd/Kristianstad

Kristianstad tapaði naumlega fyrir Redbergslid á útivelli 30:29 í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld. 

Selfyssingurinn Teitur Örn Einarsson var öflugur hjá Kristianstad og skoraði fimm mörk en það dugði ekki til.

Kristianstad fer rólega af stað í deildinni á þessu tímabili. Hefur liðið gert eitt jafntefli og tapað einum leik í upphafi móts. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert