Naumur sigur meistaranna í fyrsta leik

Martha Hermannsdóttir sækir að marki ÍBV í dag.
Martha Hermannsdóttir sækir að marki ÍBV í dag. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Íslandsmeistarar KA/Þórs fara vel af stað í Olísdeild kvenna í handbolta en liðið vann 26:24-heimasigur á ÍBV í spennandi fyrsta leik deildarinnar í dag.

Fyrri hálfleikur var jafn á nánast öllum tölum og var staðan í hálfleik 11:11. Jafnræðið hélt áfram í seinni hálfleik og var staðan 20:20 þegar rúmar tíu mínútur voru til leiksloka. Að lokum höfðu heimakonur betur eftir spennandi endasprett.

Martha Hermannsdóttir skoraði níu mörk fyrir KA/Þór og Aldís Ásta Heimisdóttir gerði fjögur. Sunna Jónsdóttir og Marija Jovanovic skoruðu sex mörk hvor fyrir ÍBV.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert