Hafdís Renötudóttir átti stórleik í marki Fram sem hóf Íslandsmótið í handknattleik á 24:22-sigri gegn Stjörnunni í Framhúsinu í dag.
Framarar voru fimm mörkum yfir í hálfleik, 15:10, en þrátt fyrir að spila ekki jafn vel í seinni hálfleik þá tókst liðinu að vinna tveggja marka sigur. Emma Olsson skoraði sex mörk og var markahæst Framara en Hafdís varði 15 af 36 skotum í markinu.
Eva Björk Davíðsdóttir var markahæst gestanna með sjö mörk en næst var Helena Rut Örvarsdóttir með fjögur.