Skoraði þrettán mörk í norsku úrvalsdeildinni

Orri Freyr Þorkelsson í landsleik síðasta vetur. Hann skoraði 13 …
Orri Freyr Þorkelsson í landsleik síðasta vetur. Hann skoraði 13 mörk fyrir Elverum í gær. mbl.is/Kristinn Magnússon

Orri Freyr Þorkelsson fór á kostum með Elverum í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í  gær þegar hann skoraði þrettán mörk í stórsigri liðsins gegn Sandefjord.

Elverum vann með miklum yfirburðum, 45:23, og er með fullt hús stiga á toppi deildarinnar eftir fjóra leiki.  Orri, sem kom til félagsins frá Haukum í sumar, hafði hægt um sig og skoraði ekki í fyrsta leiknum en gerði síðan níu mörk í sigri á Haslum og tvö í sigri á Kristiansand.

Orri fær nóg af verkefnum hjá Elverum en liðið leikur í Meistaradeild Evrópu í vetur og gerði þar jafntefli, 27:27, við stórlið Vardar Skopje í fyrstu umferð í síðustu viku. Næsti leikur er á útivelli gegn þýska stórliðinu Kiel á miðvikudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert