Íslendingaliðin taplaus í Evrópudeildinni

Kristján Örn Kristjánsson skoraði tvö mörk í Noregi.
Kristján Örn Kristjánsson skoraði tvö mörk í Noregi. AFP

Fjögur Íslendingalið léku fyrri leiki sína í 2. umferð Evrópudeildarinnar í handbolta í kvöld og beið ekkert þeirra ósigur.

Þýska liðið Rhein-Neckar Löwen gerði 31:31-jafntefli á heimavelli gegn Benfica frá Portúgal. Ýmir Örn Gíslason skoraði eitt mark fyrir Löwen.

Kristján Örn Kristjánsson skoraði tvö mörk fyrir Aix frá Frakklandi í 27:27-jafntefli á útivelli gegn Arendal frá Noregi.

Viktor Gísli Hallgrímsson sat allan tímann á bekknum hjá GOG í 30:24-sigri danska liðsins á löndum sínum í Mors-Thy.

Loks vann Kadetten frá Sviss sterkan 36:33-heimasigur á Granollers frá Spáni. Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar svissneska liðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert