Bjarki ekki með Lemgo gegn Val

Bjarki Már Elísson fagnar marki í fyrri leik liðanna í …
Bjarki Már Elísson fagnar marki í fyrri leik liðanna í síðustu viku. Unnur Karen

Bjarki Már Elísson verður ekki með þýska handknattleiksfélaginu Lemgo þegar liðið fær Val í heimsókn í kvöld.

Bjarki Már er að glíma við meiðsli á kálfa og missir því af síðari leik liðanna í annarri umferð Evrópudeildarinnar í Lemgo í kvöld, en þýsku bikarmeistararnir unnu fyrri leikinn í Origo-höllinni að Hlíðarenda fyrir sléttri viku naumlega, 27:26.

Hann meiddist í þeim leik en harkaði af sér. „Það myndaðist vökvi á kálfanum í leiknum heima og liðslæknirinn sagði að það væri of mikil áhætta að taka að vera með í leiknum í kvöld,“ sagði Bjarki Már í samtali við Handbolta.is í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert