Stjarnan jafnaði Val á toppnum

Garðbæingar jöfnuðu Valsmenn að stigum í efsta sæti úrvalsdeildarinnar.
Garðbæingar jöfnuðu Valsmenn að stigum í efsta sæti úrvalsdeildarinnar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Starri Friðriksson skoraði sjö mörk fyrir Stjörnuna þegar liðið vann fimm marka sigur gegn Selfossi í úrvalsdeild karla i handknattleik, Olísdeildinni, í Set-höllinni á Selfossi í kvöld.

Leiknum lauk með 25:20-sigri Stjörnunnar en staðan var jöfn í hálfleik, 11:11.

Selfoss náði mest fimm marka forskoti í fyrri hálfleik, 10:5, en Garðbæingum tókst að koma til baka og jafna metin undir lok fyrri hálfleiks.

Garðbæingar sigu fram úr í upphafi síðari hálfleiks og leiddu með fjórum mörkum 22:18, þegar tíu mínútur voru til leiksloka og Selfyssingum tókst ekki að snúa leiknum sér í vil á lokamínútunum.

Leó Snær Pétursson skoraði sex mörk fyrir Stjörnuna og Adam Thorstensen varði tólf skot í markinu, þar af eitt vítakast. Einar Sverrisson var markahæstur í liði Selfyssinga með sjö mörk.

Stjarnan fer með sigrinum upp í 8 stig og jafnar Valsmenn að stigum í efsta sæti deildarinnar. Selfoss er hins vegar í miklum vandræðum í níunda sætinu með 2 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert