Selfyssingar úr leik

Richard Sæþór Sigurðsson skoraði 5 mörk fyrir Selfyssinga.
Richard Sæþór Sigurðsson skoraði 5 mörk fyrir Selfyssinga. mbl.is/Hari

Selfoss tapaði 28:22 gegn slóvenska liðinu Jeruzalem Ormoz í seinni leik annarrar umferðar Evrópubikars karla í dag. Fyrri leiknum lauk með 31:31 jafntefli og eru Selfyssingar því úr leik.

Þeir Richard Sæþór Sigurðarson og Árni Steinn Steinþórsson voru markahæstir í liði Selfoss en þeir skoruðu fimm mörk hvor. 

Hjá heimamönnum var Martin Hebar markahæstur með sjö mörk og næstur var Tilen Kosi með sex.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert